miðvikudagur, maí 07, 2003

-jæja góðan daginn gott fól...letinginn í mér hefur haft yfirhöndina undanfarið... ég hef átt í mesta basli með að halda mér við efnið og hálfpartinn svíf bara í gegnum daginn í furðulegri vímu sem er blanda af síðþreytu og því að nenna ekki neinu... svo er ég líka búinn að vera hálf undarlegur í skapinu, því ég nenni ekki að tala um kosningar eða próf og það er það eina sem er í umræðunni í kringum mig þessa daganna... kveiki á sjónvarpinu og þar er e-ð um kosningarnar og svo mætir mar uppí skóla og allir eru að tala um hvernig þeim gékk í þessu og hinu prófinu og hvað þau eru búin að læra mikið fyrir næsta próf... arrrggg.... en ef þú smælar framan í heiminn, þá smælar heimurinn framan í þig :) takk megas...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim